Vöku Gigg
Ég tók kvöldið snemma með systu og við skunduðum á VIP Gigg hjá Vöku, nema hvað. Kvöldið byrjaði skemmtilega vel, þar sem leigubílstjórinn okkar var Akureyringur og stóð orrahríð milli hans og okkar Eyjasystra alla leið í bílnum. Hvað er þetta með Akureyringa og að þola ekki Eyjamenn... bara afþví við erum með flottari útihátíð ;)
Kvöldið fór svo tiltölulega rólega af stað þar sem enskir brandarar stóðu einna helst upp úr, og ég bauð mig fram í embætti ljósmyndara Vöku.. spurning hvort ég verði ekki látin standa við þau orð þar sem mér skilst að það sé ekki eftirsótt starf ;)
En eftir miðnætti hafði heldur betur þynnst úr hópnum og vorum við innan við tíu sem skunduðum inn á skemmtistaði borgarinnar. Spænskuspjall við Chilebúann og Spænsku stelpuna á klósettinu ásamt endurfundum við góðan og gamlan vin úr Eyjum stóðu upp úr á Hressó en svo lá leiðinn inn á hinn ofurpakkaða Kaffibar. Það vakti furðu mína þegar ég leit á úrið mitt við heimleið, enda klukkan að verða fimmm um morgun! -mér hefði þó ekki getað staðið meira á sama, enda gott kvöld yfirstaðið og mér hafði loks tekist að framkvæma ætlunarverkið.
Stjörnuspáin í dag hljómar svo á þessa leið:
-og ég er ekki frá því að ljósið skíni skærar í dag.

Ljósið innra með ljóninu skín skært, sem er gott enda er skuggsýnt sums staðar, þar sem leiðin liggur. Kannski tekst þér að bjarga einhverjum með því að vera eins og þú átt að þér.